13nóvember

Jólin koma

Var að koma úr jólaföndri með nokkrum bekkjarsystrum mínum og það er bara virkilega erfitt að föndra. Ég er hálftilfinningalaus í vísifingrinum á hægri eftir að nota íspinnaprik til að nudda myndum inn í kerti. En ég á tvö fín kerti sem ég get gefið í jólagjafir, og það verður nú aldeilis heppið fólk sem fær þau. Það er svo ofsalega notalegt að komast í smá jólagír strax, slakandi að hlusta á jólalög og hlakka til þess að geta undirbúið jólin aðeins. Mjög nýtt fyrir mér að vera búin svona snemma í prófum, 15. desember er fyrirheitni dagurinn, klipping eftir próf, vinna 16., 17. og 21. des og annars verður það bara afslappelsi, jólagjafakaup, fá systu og fjölskyldu heim yfir jólin og auðvitað jólaglöggið.

Það er svo ofsalega kjánalegt að vera skotin/n í einhverjum. Bara allt við það er kjánalegt, fólk þekkist ekkert en finnst samt eitthvað heillandi, en samt ekki því þau þekkjast ekki neitt. ,,Á hann msn?", ,,Ætti ég að senda henni sms?" Svo er það líka málið með asnalegheitin í framkomu þegar fólk er skotið. Hef nokkrum sinnum lent í því að eiga svona ágætis vini/kunningja sem eru skemmtilegir og fyndnir og svo allt í einu gerist eitthvað, þeir fara að haga sér stórundarlega, segja ALLS EKKI fyndna brandara og bara verða hálfleiðinlegir. Ég kýs að kalla það heill´ana gírinn sem fer þarna í gang og veldur þessari umbreytingu. Ef mér finnst einhver skemmtilegur finnst mér hann ekkert skemmtilegri ef hann gjörbreytist. Nema ef hann var leiðinlegur fyrir og þá mega þeir alveg breytast. En já, asnalegt að vera skotinn.

Herra Littman er mættur á svæðið mér til mikillar gleði. Ég og Eyrún vorum í læknisleik áðan - í nánast öllum fötunum ef einhverjum dettur í hug að túlka þetta á annan hátt en að við höfum hlustað lungun í hvor annarri og hjartað í okkur sjálfum. Það verður nú gaman að kunna á græjuna. Ég og Jónína bíðum að minnsta kosti spenntar með ,,matching" hlustunarpípur! Við erum næstum því hjón...
Var að spá í að kaupa mér
bleika en af því mig langar doltið í bleika crocs skó held ég að það væri kannski tú mötsj. Er kannski ekki hægt að vera trúverðug sem læknir í bleikum skóm? Heyriði mig, þegar ég var að leita að linknum sá ég að bleiku crocs skórnir eru líka brjóstakrabbameinstilvitundarvara þannig að ég þarf ekkert að afsaka val mitt fyrir bleikfælnu fólki. Halló þeir eru til styrktar einhverju! Svo ekki sé minnst á að þeir fljóta...

13. nóvember 2006 klukkan 07:05
Dagbjört Helgadóttir
5 athugasemdir
10nóvember

NÚNA

er tíminn til að segja mér það ef þið viljið að ég heiðri ykkur með link á síðunni minni.

10. nóvember 2006 klukkan 22:34
Dagbjört Helgadóttir
4 athugasemdir
10nóvember

Straumhvörf

Nú er síðan orðin þolanleg og þá er mér ekkert að vanbúnaði að setja link á gömlu síðuna og gleyma að hún hafi nokkurn tímann verið til. Eða nei annars, set kannski link hér á hana til að ég gleymi ekki alveg hvar hún var. Ég mun svo vonandi finna fleiri myndir til að setja inn á þessa síðu. Ji hvað þetta er spennandi.
10. nóvember 2006 klukkan 22:30
Dagbjört Helgadóttir
Engin athugasemd
10nóvember

Gamlar konur

og oft gamalt fólk yfirleitt á mjög erfitt með að gera nýja hluti. Það hræðist hið óþekkta. Ég er greinilega ekki mjög gömul fyrst ég þori þessu, að taka þetta stóra skref í lífinu. Nýtt blogg er fætt, gott að það þarf ekki að þrífa jafnmikið blóð eftir þessa fæðingu og margar aðrar.
10. nóvember 2006 klukkan 08:04
Dagbjört Helgadóttir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

sniðugt

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Gamla síðan mín fær sér ,,kubb":

Fólk sem er duglegt að taka myndir

Leit

Innskráningar kubbur