03janúar

Draumur um (ekki Nínu)

Í nótt dreymdi mig að kennari, einn sá leiðinlegasti sem hefur kennt okkur í þessari deild að mínu mati, hringdi í mig og spurði hvort mér litist ekki vel á þá hugmynd hans að við myndum stunda kynlíf af og til. Ég sagði pent nei.

Í byrjun próflesturs dreymdi mig að ég var orðin svo hrædd um að ég myndi aldrei eignast barn þannig að ég fékk kvensjúkdómalækninn minn til að gera mig ólétta. Mig dreymdi ekki ferlið við það, bara það að ég var orðin ólétt, komin mánuð á leið og þá fékk ég bakþanka. Mig langaði ekkert til að vera ólétt og eignast barn ein en ég þorði ekki að segja lækninum mínum það - enda hálfkjánalegt að fá hana til að gera mig ólétta og vilja svo ekki eiga barnið! Það var ekki gaman að vakna og vera með virkilega raunverulega sektarkennd yfir því að vilja fara í fóstureyðingu.

Einn versti misskilningur lífs míns varð á laugardaginn. Ég mætti í vinnuna klukkan hálfátta og komst að því þegar ég var búin að skipta um föt og allt að ég hafði ruglast. Átti ekki að byrja fyrr en hálffjögur. Virkilega fúlt en ég bætti aðeins úr því með því að kaupa kjól áður en ég mætti seinna um daginn. Á samt ennþá eftir að finna skó svo að jólin verði fullkomnuð. Spurning hvort ég eigi að láta strigaskó sem ég sá nægja eða hvort ég ætti að bíða eftir spariskóútsölum  - get ekki keypt mér skó sem kosta auga. Bæði get ég ekki séð af svo miklum pening í skó sem eru ekki endilega að fara að endast mér út lífið og svo finnst mér út í hött að kaupa skó á til dæmis 15.000 kall svo að skóbúðin geti grætt 14.000.
03. janúar 2007 klukkan 06:38
Dagbjört Helgadóttir
3 athugasemdir
31desember

Sjúkk

ég rétt næ að blogga síðustu færslu ársins núna.

Ég er búin að taka jólafríið svo hátíðlega að ég blogga ekki einu sinni. Annars er allt búið að ganga sinn vanagang jólafríslega séð, vinna (þó ekki á póstinum sem er nú alveg saga til þarnæsta bæjar), ekki sofa neitt voðalega mikið því ég finn mér alltaf eitthvað ofsalega ómerkilegt að gera þar til klukkan fimm og hitta skemmtilegt fólk og spila.
Jólaglöggið var ansi skrautlegt og fötlun mín sem felur í sér að ég man alltaf allt hvarf ekki, mér til dálítillar mæðu. Miðað við að það séu ekki til strippstaðir með körlum sá ég ótrúlega mikið bert hold þetta kvöld svo ekki sé meira sagt. Bekkjarbræður mínir sumir hverjir þjást af óþrjótandi sýniþörf.

Jólagjafauppskeran var mjög góð þetta árið. Brauðrist, vöfflujárn, baðsloppur og nærföt eru meðal þess sem bættust í búið svo ekki sé minnst á tvær óvæntar gjafir, dagatal með berum karlmönnum (slökkviliðsmönnum) frá Ósk og Sverri og bók frá Jóhanni. Þó það sé gaman að fá gjafir get ég nú ekki sagt annað en að það sé heldur óþægilegt að fá þær svona óvænt á aðfangadag. En ef að fólk gefur manni bara sisvona gjöf á aðfangadag þá getur það ekki búist við neinu... Í mesta lagi konfekti. En það er svo sem hægt að bæta úr gjafavöntun hvenær sem er eftir jól.

Í nótt dundaði ég mér við að finna voðalega fínt útlit fyrir myspace síðuna mína. Fann ofsaflott Love Actually útlit sem að ég bætti við og viti menn, allir íslenskir stafir urðu að óskiljanlegri runu. Ég elska að vera svona léleg í tölvudóti. Núna þarf virkilega að einbeita sér við að skoða mitt svæði.
31. desember 2006 klukkan 19:03
Dagbjört Helgadóttir
2 athugasemdir
18desember

Auđvelda konan

Vegna fullyrðinga um að ég sé erfið þegar kemur að jólagjöfum þá birti ég hér lista sem væntanlega auðveldar einhverjum lífið.
Baðsloppur, blandari, mortél, pottaleppar, motta (bæði úti og inni svo ég geri ekki sandkassa inni hjá mér) og vöfflujárn,
Og svona fyrst ég er byrjuð: Sími, ipod, myndavél, flakkari, hrærivél og skór.
Svo er alltaf hægt að gefa mér eitthvað ,,stelpulegt" eins og snyrtidót og ilmvatn og svona.

Mér datt í hug í gær að ég ætti eiginlega bara að reyna að gifta mig sem fyrst. Það virðist alveg redda búskapnum hjá
sumum.

Nú vill svo til að ég á ekki kærasta. Ef ég ætti kærasta myndi ég gefa honum gjöf fyrir, tjah segjum 5.000 krónur. Hann myndi þá (vonandi) gefa mér gjöf fyrir jafngildi þess. Ég myndi jafnvel fá í skóinn (hef ekki fengið í skóinn í mörg ár, þetta er bara svona það sem ég hef heyrt útundan mér, að pör gefi hvort öðru í skóinn) og segjum sem svo að ég fengi alltaf í skóinn og það myndi enda í 5.000 krónum samtals. Á ég þá ekki skilið að gefa sjálfri mér jólagjöf fyrir að minnsta kosti 15.000 krónur? Mér finnst það, svona ef ég finn fína skó einhvers staðar sem eru ekki til í milljónatali á Íslandi. Allur þessi reikningur var eingöngu framkvæmdur til að finna ástæðu til að kaupa fína skó.

18. desember 2006 klukkan 18:21
Dagbjört Helgadóttir
14 athugasemdir
13desember

Á heilann

er gaman að fá lög sem eiga við hverju sinni. Mitt uppáhalds heilalag þessa dagana er lagið ,,Svona eru jólin" endurhljóðblandað vegna þess að í stað þess að syngja ,,svon´ eru jóóólin" syng ég ,,svon´ eru próóófiiin" af mikilli innlifun.
13. desember 2006 klukkan 16:59
Dagbjört Helgadóttir
5 athugasemdir
12desember

Tilvitnun dagsins

,,Annað hvort er bara gaman þegar strákar eru að reyna við mann eða ekki."

12. desember 2006 klukkan 23:11
Dagbjört Helgadóttir
5 athugasemdir
12desember

Óstađfestar stađhćfingar?

,,Vísbendingar eru um að nýfædd börn hafi verið myrt í Úkraínu í því skyni að ná úr þeim stofnfrumum til ólöglegs útflutnings en óstaðfestar staðhæfingar hafa verið settar fram um að stofnfrumur nýtist til lækninga nokkurra sjúkdóma sem eru ill- eða ólæknanlegir með hefðbundnum aðferðum. Þetta kemur fram á fréttavef BBC."

Þetta er tekið af mbl.is í dag. Er ekki fullmikið sagt að þetta séu óstaðfestar staðhæfingar? Skrifaði Bush fréttina?
12. desember 2006 klukkan 22:40
Dagbjört Helgadóttir
Engin athugasemd
12desember

Undrun á innsoginu!

Það er hægt að gera færslu án þess að vera með fyrirsögn!
12. desember 2006 klukkan 05:07
Dagbjört Helgadóttir
Engin athugasemd
12desember

Ímyndað samtal a við b (a getur verið það sama og b):
,,Í hvaða fötum ætti fyrirsætan að vera?"
,,Ég veit það ekki, einhverju litlu."
,,Það eru ekki nógu lítil föt í heiminum þannig að látum bara glimmer á geirvörturnar og látum það duga."

Útkoman er auglýsingin fyrir Noa, nýtt ilmvatn frá Cacharel.

Komin heim eftir taugatrekkjandi sumarbústaðadvöl svo ekki sé meira sagt. Ekki nóg með að það var brjálað veður á laugardagskvöldið heldur fór rafmagnið líka af í rúma tvo tíma. Eins og allir vita kemur vondi kallinn við svona aðstæður, rok, rigning og rafmagnslaust. Hann kom ekki sem betur fer en ég var komin með plan svona með sjálfri mér um að ef einhver bankaði yrði farið með hníf til dyra og það yrði hringt á 112 strax - bara svona til öryggis. Já ég er myrkfælin! Við kveiktum á fullt af kertum en sem betur fer vorum við að lesa í tölvunum okkar þannig að myrkrið aftraði ekki lærdómi - nema þann tíma sem það tók mig að gera viðbragðsáætlunina við banki.
Mýsnar létu ekkert sjá sig um helgina enda enginn girnilegur ruslapoki sem við skildum eftir úti eins og í fyrra skiptið þegar þær héldu árshátið. Það er alveg ótrúlegt hvað þessi litlu dýr eru krúttleg. Orðið krúttmús öðlaðist nýja merkingu í huga mér við að sjá þær tipla þarna um, þefandi út í loftið svo ekki sé minnst á þegar þær skutust í burtu þegar þær sáu okkur Jónínu. Æh þær eru svo sætar Koss

Nú er ég búin að prófa að bera á mig e-ð voða fínt vertubráðumbrúnáheilbrigðanhátt krem og það er eitthvað svo undarleg lykt af því þegar það er komið á húðina. Það kemur svona blanda af lyktinni af manni eftir að hafa farið í ljós (sem ég er hætt að gera fyrir löngu því það er svo óhollt), sólarvarnarlykt og svo einhver ókunnur keimur af annarri lykt. Get ekki  útskýrt það. Einhverjar hugmyndir?

Ég held mig langi í allt Grey´s Anatomy dót sem til er, nema kannski I love Dr. McDreamy dótið. Jú, ég myndi vilja það frekar en ekkert en ég er samt aðeins á móti svona sætustrákastrákum sem finnst þeir æðislegir þannig að ef það væri til I love George dót myndi ég mest vilja það. Ég veit hann er hommi samt í alvörunni. Svo er það auðvitað featured items dótið sem er nú líka ekki af lakara taginu. Verst hvað ég finn hvergi ótrúlega flottu rauðu skóna sem eru í laginu á undan þættinum. Ég hlakka svo til að geta horft á alla nýju þættina þegar ég er búin í prófum, ásamt því að vinna, föndra, undirbúa jólaglögg, kaupa jólagjafir og ég gæti haldið áfram endalaust. Ég sem sagt hlakka til að horfa á Grey´s áður en ég fer allt of seint að sofa í jólafríinu sem ég þarf samt að gera fullt af hlutum í.
12. desember 2006 klukkan 05:06
Dagbjört Helgadóttir
7 athugasemdir
08desember

Týndar nćrur

Mér finnst það vera borgaraleg skylda mín að benda fólki á brandara eins og þennan. Biðst afsökunar á nærbuxnaleysi? Eru allir búnir að sjá pjölluna hennar undanfarið nema ég? Ekki það að mér finnist ég missa af einhverju... Það er meðal annars á svona stundum í lífinu sem maður skilur það lítið að það er ekki hægt að segja neitt.
08. desember 2006 klukkan 22:37
Dagbjört Helgadóttir
3 athugasemdir
08desember

Ósjálfráđ viđbrögđ

mín við því að lesa eða heyra þágufallssjúkt (vá skrifaði þetta næstum bara með einu essi!) fólk tjá sig er svona tímabundin út úr líkamanum reynsla. Mér finnst eins og vegalengdin milli eyrna minna lengist (tengist því ekki hvað ég held að það sé gott íðí sem liggur þar á milli) og augun ætli út úr höfðinu á mér. Ég veit ekki alveg með svipinn sem kemur á mig, aðrir þurfa að lýsa honum. Ég segi oft og skrifa einhverjar vitleysur en það er af því ég veit ekki betur, að minnsta kosti ekki á því augnabliki. Ég hunsa ekki málfræðireglur sem ég kann eða ætti að minnsta kosti að kunna bara af því ég er vön öðru. Oh, dagurinn fyrir próf... ég hlýt að mega gera barnaúlfalda úr úlfaldafóstri. (Ætli það sé transgenískt eða knockout? Kannski bara með GAL4 og tissue specific enhancer sem lætur tjá það á vitlausum stað? Svona eins og eitt stykki auga á hnénu?)
08. desember 2006 klukkan 03:16
Dagbjört Helgadóttir
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

sniđugt

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Gamla síđan mín fćr sér ,,kubb":

Fólk sem er duglegt ađ taka myndir

Leit

Innskráningar kubbur