03september

"You would fall for the sensitive guy. You'll find your future man wherever turtlenecks are sold. He will have depth, introspection, and a disturbing knowledge of musical theatre. And he may be a little weird. But hey, while your girlfriends cry over broken hearts, you'll be having Shakespeare read to you every night."
Af því að ég er pínu tölvuþroskaheft (of mikið af voltaren retard?) þurfti ég að koppí peista þetta þarna inn. Sá þetta hjá henni Bergrósu sem hefur ekki sama smekk og ég. Þá er bara að finna út hvar rúllukragapeysur eru seldar...
24júní
Ég er með harðsperrur í fótunum. Ekki vegna þess að ég hafi verið svo dugleg í ræktinni. Ekki heldur vegna þess að ég hafi farið í langan göngutúr upp á fjall í útilegunni sem ég var í síðustu nótt. Ég þurfti bara svo oft að pissa úti að ég er með harðsperrur í lærunum. Mig grunar að ég verði sérlega illa úti vegna þess að ég get haldið svo lengi í mér að loksins þegar ég pissa er ég svo lengi að því að sýruverkirnir eru fyrir löngu orðnir óbærilegir þegar ég loksins er búin.
Þess má einnig geta að ég fékk harðsperrur í kálfana í vikunni sem leið eftir að hafa verið klukkustund í barnalauginni í Laugardalnum. Ekkert sund og ekki neitt, bara hokin í barnalauginni og þá koma harðsperrur í heimsókn.