Sumir
læknar/kennarar (eiginlega meira kennarar innan sviga því þeir eiga í raun ekki skilið að fá að kenna sig við það starfsheiti) virðast á einhvern dularfullan hátt hafa gert samning við sambland af djöflinum og eðlisfræðingi (er djöfullinn kannski bara helvíti góður eðlisfræðingur?) til að geta stöðvað tímann. Tíu mínútur líða alls ekki hjá eins og tíu mínútur á skurðstofu, í kaffitíma eða í almennri kennslustund. Þær líða bara alls ekki neitt. Og þegar kona er inni í dimmu herbergi þar sem röntgen- og tölvusneiðmyndir eru einu ljósgjafarnir þá er bara alls ekkert einfalt að halda sér vakandi. Ég sem hélt að ég væri komin yfir það tímabil í lífinu þar sem ég sofna í tímum.
03. nóvember 2008 klukkan 18:42
Dagbjört Helgadóttir
Dagbjört Helgadóttir
